Bilið nú breiðast í utanríkismálum

"Þótt dregið hafi úr hugmyndafræðilegum ágreiningi í efnahagsmálum eru þó gjár á því sviði sem erfitt er að brúa milli núverandi póla. Bilið er þó breiðast í utanríkismálunum," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli sínum á hringbraut.is.


Hann segir þetta vera afgerandi breytingu: "Áður fyrr var samstaða í stórum dráttum um grundvallaratriði utanríkisstefnunnar milli þriggja flokka. Alþýðubandalagið lét ágreining um þau mál hins vegar ekki standa í vegi stjórnarþátttöku. Með hæfilegri einföldun má segja að utanríkisstefnan hafi verið límið í pólitíkinni. Nú er hún helsta uppleysiefnið."


Hann veltir fyrir sér hvað stærsta stjórnmálaaflið sem nú mælist á íslandi, Píratar ætli sér í þessum efnum en það muni ef til vill miklu breyta: "Í þessu ljósi verður fróðlegt að sjá hvernig nýja kjölfestan í pólitíkinni horfir á utanríkismálin og hvernig hún telur skynsamlegast að nálgast ákvarðanir á því sviði. Í fyrstu atrennu snýst sú spurning um hvort þessi stóra kjósendafylking stendur nær ómöguleikakenningunni eða þjóðaratkvæðagreiðslu," skrifar Þorsteinn og segir vandalaust að geta sér til um það.


Hitt sé ekki eins auðvelt að ráða í hvernig hópurinn muni beita áhrifum sínum þannig að þess verði vart með varanlegum og uppbyggilegum hætti að ný kjölfesta sé að myndast í pólitíkinni þegar dragi nær kosningum. "Spurningin er hvort hún mun hafa þau áhrif að unnt verði að mynda stjórn yfir miðjuna á ný," skrifar Þorsteinn sem minnir á að tvær síðustu ríkisstjórnir hafi ólíkt mörgum fyrri ekki náð yfir þessa miðju, heldur ýmist hallað sér alveg til vinstri eða alveg til hægri. Breyting geti hæglega orðið þar á eftir næstu kosningar.