Bílasala snaraukist frá síðasta ári

Bílasala á Íslandi hefur tekið þvílíkan kipp á síðustu misserum og líkja verður við þensluárin fyrir efnahagshrunið haustið 2008. Einstklingar hafa keypt 49% fleiri bíla í ár en í fyrra, fyrirtæki 57% fleiri og bílaleigur þriðjungi fleiri.

Að því er fram kemur í bílablaði Fréttablaðsins í dag hafa selst alls 10,823 bílar það sem af er ári sem er 41% aukning frá sam tímabili í fyrra. Allir markaðshlutar eru að vaxa ágætlega,s egir í samntekt blaðsins, en mest beri þó á söluaukningunni á meðal einstaklinga.

Toyota er sem fyrr langsöluhæsta bíltegundin á íslandi, en Mercedes Benx selst best af lúxus-bílamerkjum.

Þá kemur fram í bóilablaðinu að BL er söluhæsta umboðið nú um stundir.