Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir að með ákvörðun stjórnvalda um að afnema afslátt sem bílaleigur hafa fengið af vörugjaldi sé verið að taka alla afkomu út úr greininni, en áhrifin verði veruleg á bílaleigur, bílasölur og ferðaþjónustuna í heild.
Þetta kemur fram í samtali við Steingrím í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag, en þar segir hann að mótmæli rekstraraðila á hans geira hafi hér engu breytt; ríkið ætli greinilega að afnema afsláttinn að fullu: \"Þetta þýðir að við munum þurfa að eiga bílinn yfir tvo vetur,\" bendir hann á og segir endurnýjun bílaflotans hjá bílaleigum muni taka mun lengri tíma en verið hefur - og öryggið muni því minnka: \"Á veturna dregst bílaleiga mjög saman og það er enginn heilvita maður að fara að eiga nýjan bíl í svona langan tíma í 10% vaxtaumhverfi,\" segir hann enn fremur en afsláttur af vörugjaldi hafi fram að þessu gert rekstrarumhverfi bílaleiga á Íslandi bærilegt, með afnáminu verði það óbærilegt.
\"Ég er mjög ósáttur,\" segir hann: \"Ég sé ekki betur en með þessu sé verið að taka alla afkomu út úr greininni,\" og hann bætir við: \"Þetta mun þýða að bílaleigubílar verða eldri og færri. Það er í raun verið að drusluvæða bílaleigurnar,\" segir Steingrímur í Viðskiptablaðinu í dag.