Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var á Alþingi í dag gagnrýndur fyrir að beita sér ekki fyrir umhverfisvænum bílakosti fyrir sjálfan sig í starfi. Viðskiptablaðið greindi frá því að glænýr lúxusjeppi hafi verið keyptur af Stjórnarráðinu fyrir Sigmund Davíð og kosti 22 milljónir króna. Veittur var samkvæmt blaðinu verulegur afsláttur til kaupanna en þingmaður Bjartrar framtíðar, Brynhildur Pétursdóttir, vildi í óundirbúnum fyrirspurnum vita af hverju ráðherra beitti sér ekki fyrir umhverfisvænum bílainnkaupum.
Sigmundur Davíð vildi ekki játa að hann hefði sjálfur haft aðkomu að bílakaupunum. Hann vék sér undan því að svara þegar Brynhildur ítrekaði spurningu sína. Hann svaraði ekki heldur með beinum hætti spurningu hvort hann ætti að beita sér sérstaklega fyrir að umhverfisvænsti kostur í bílamálum yrði valinn fyrir hann sem forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð taldi aftur á móti tækifæri fyrir rafbílaframleiðendur að leitast við að gera stjórnvöldum kleift að eignast slíka bíla á góðum kjörum.