Forsvarsmenn bíladelluþáttarins Kíkt í skúrinn, sem er sýndur á mánudagskvöldum á Hringbraut, efndu í gærkvöld til keppni í keilu á milli allra helstu bílaklúbba landsins.
Vel var mætt í Egilshöllina þar sem keppnin fór fram - og svo vel tókst til að ákveðið hefur verið að halda annað samskonar mót í janúar á nýju ári. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem bílaklúbbar landsins etja kappi í keilu, en þeir eru kunnari fyrir að viðra bíla sína en að kasta kúlum eftir rennisléttum brautum.
Keppnin í gær endaði svo að Krúsir-klúbburinn bar sigur úr býtum og fékk að launum forláta verðlaunagrip í hendurnar sem mun efalítið sóma sér vel inni í bílskúr félagsmanna.