Bílabærinn selfoss heimsóttur

Það verður almennilegur dreifbýlisbragur á bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn á Hringbraut í kvöld en þar verður bílabærinn Selfoss heimsóttur sem löngum hefur státað af forláta sjálfrennireiðum.

Jói heilsar meðal annars upp á Baldur Róbertson, en hann er stofnandi bifhjólaklúbbs Suðurlands sem heitir því forláta nafni Postularnir, en Baldur er numero uno á þeim bænum og fyrrverandi formaður Bifreiðaklúbbs Suðurlands. Jói skoðar hjá honum fjóra bíla, tvo sem sem hann er búinn að gera upp og aðra tvo sem hann er með í vinnslu, þar á meðal svarta Maríu, en um hana eiga margir misgóðar minningar. Þessi bíll hefur líka \"komið fram\" í ýmsum íslenskum kvikmyndum og þáttum, t.d. Djúpinu, Málmhausum, Sönnum íslenskum sakamálum og fyrstu seríunni af Rétti.

Bifreiðaklúbbur Suðurlands er einnig sóttur heim í þættinum, en þar fræðir Guðmundur Óskarsson, formaður klúbbsins okkur um starfsemina. Klúbburinn fékk hús hjá sveitafélaginu Árborg sem félagarnir hafa lagað mikið, enda margar hendur sem vinna létt verk hjá klúbbnum. 

Í lok þáttarins er fjallað um framrúður sem skipta auðvitað miklu máli, enda halda þær uppi burðavirki bílsins. Jói tekur gott spjall við Ragnar Matthíasson, forstjóra Poulsen og hann leyfir áhorfendum að fylgjast með framrúðuskiptum á rúðuverkstæði fyrirtæksins. Þar leynist ýmislegt, meðal annars er þar að finna framrúður í alla bíla dagsins í dag og meira að segja líka í fornbíla eins og Ford T, Buick og aðra fornbíla en þetta á fyrirtækið bara sí svona á lager.

Kíkt í skúrinn er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld og er þátturinn endursýndur strax klukkan 22:30 og einnig sjáanlegur á flakkinu.