Bikarinn í coca cola einkaþotu

Bikarinn sem verður veittur því liði sem verður heimsmeistari í knattspyrnu karla á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar var í Smáralind í Kópavogi í gær. Bikarinn hefur verið á faraldsfæti um heiminn í einkaþotu merktri Coca Cola. Í fyrradag var hann í Þórshöfn í Færeyjum og í dag liggur leið hans til Argentínu. Með í för er franski knattspyrnumaðurinn Christian Karembeu, sem lék með franska landsliðinu sem vann HM 1998.