Bifreið fór fram af hengju

Björg­un­ar­sveit­ir frá Hellu og Flúðum voru í gærkvöld kallaðar út vegna bíl­slyss við Jök­ul­heima.  Bifreið hafði verið ekið fram af snjóhengju og slasaðist farþegi í fram­sæti.

Mbl.is sagði frá en skv. frétt vefmiðilsins gekk björgunarleiðangur vel. Ekki er nákvæmlega vitað um líðan þess sem slasaðist en hann var mjög kvalinn eftir því sem fram kom í frétt Ríkisútvarpsins.

Fyrr í gærkvöld sótti þyrla Landhelgisgæslunnar slasaðan vélsleðamann í Hrafntinnusker.

Einnig hafa orðið nokkur alvarleg slys í umferðinni á þjóðvegum landsins um helgina.