Birgitta: sigmundur hætti fyrir þingfund

\"Ég vona að hann Sigmundur Davíð skilji alvarleika málsins og sjái sóma sinn í því að segja af sér fyrir þingfund í dag. Mikil er ábyrgð hans ef hann gerir það ekki. Það er gríðarleg ólga í samfélaginu eftir að hann var afhjúpaður í Kastljósi í gær sem loddari og lygari með vænissýki á háu stigi.\"

Þannig skrifar Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata í færslu á eigin facebook-síðu í morgun.

Þing kemur saman klukkan 15. Hefðbundinni fyrirhugaðri dagskrá nefndafunda hefur verið umturnað vegna hneykslismálsins þar sem afhjúpað hefur verið um skattaskjól forsætisráðherra og ósannindi hans. Von er á fjöldamótmælum á Austurvelli í dag. Hafa erlendir fréttamiðlar sýnt mótmælunum töluverðan áhuga. Hefur því verið slegið upp að til tíðinda kunni að draga en stjórnarandstaðan mun leggja fram vantraust á forsætisráðherra og fylgja eftir með kröfu um þingrof og kosningar ef aðrir þingmenn verja hann vantrausti. Það er segjast treysta honum.

Birgitta segir að afhjúpun gærdagsins um alla heimsbyggð, vönduð umfjöllun allra helstu fjölmiðla heims, setji allar kenningar Sigmundar og félaga hans í Framsóknarflokknum um loftárásir fjölmiðla hér heima í annað ljós. Meint píslavætti þeirra teljist til háðungar um heim allan.

Birgitta sagði á Rúv í morgun að fjölmargt nýtt hefði komið fram í gær t.d. salan á eignarhlutnum í Wintris fyrir einn dollara. Traust og trúverðugleiki landsins væri undir.