„Ég er eiginlega hissa á því hve margir hafa tekið undir sjónarmið mín um gjaldskrárhækkanir“, segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, hagfræðingur og ung móðir tveggja leikskólabarna í borginni. Dregið hafi verið of mikið saman í mat og námsgögnum leikskólabarna í Reykjavík og eina leiðin sé að hækka leikskólagjöld svo hægt verði að gera betur.
Anna Hrefna, skrifaði grein í Fréttablaðið í vikunni um stöðu leikskóla Reykjavíkurborgar þar sem hún segir að horfast verið í augu við raunveruleikann, svo vitnað sé í titil greinarinnar. Þar færir Anna Hrefna rök fyrir því að hækka gjaldskrá leikskólanna til að bæta þjónustuna við leikskólabörn.. „Við erum alls ekki að gagnrýna leikskólakennara enda vinna þeir frábært starf en við sjáum samt hvað þeir eru orðnir þreyttir á endalausum niðurskurði“ segir Anna Hrefna sem ræddi við Lindu Blöndal í Lífinu á Hringbraut.
Skóla – og frístundasvið á að skera niður um tæpar 700 milljónir á þessu ári. Anna Hrefna segir erfitt að átta sig á því hve mikið af því leikskólarnir eiga að taka á sig. Hún bendir líka á að pláss séu laus en ekki hægt að fylla þau sökum slæms fjárhags. Þannig bitni slæmur fjárhagur ekki bara á gæðum leikskólastarfsins heldur líka á möguleikum foreldra að koma börnum sínum að á leikskóla. Hún bendir á að bæði hafi neysluvísitala hækkað og laun en leikskólagjöld hafi staðið í stað og hlutfall tekna í leikskólareksturinn sé því minni en áður.
Viðtalið við Önnu Hrefnu má sjá hér: