Bíður ríkisins afleikur í bankasölu?

Efasemdarraddir heyrast um það hvort ríkið eigi að selja hlut sinn í Arion banka nú um stundir en þeim fylgir sá hljómur að tímasetning sölunnar geti reynst hinu opinbera heldur dýrkeyptur. Það borgi sig að bíða.

Einn af efasemdarmönnunum er Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun sem leggur þessi orð í belg á nýrri fésbókarfærslu: \"Eg vantreysti núverandi fjármálaráðherra til að stjórna eignarhlutum ríkisins í fyrirtækjum, m.a. fjármálafyrirtækjum. Nú er altalað um að ríkið ætli að selja sinn hlut í Arion banka fyrir 23 milljarða. Hvað liggur á að selja þennan hlut? Það skyldi þó ekki vera að fyrirhugað er að lækka eiginfjárhlutfall bankans úr 24% í 17%. Þeir sem njóta góðs af því eru hluthafar bankans. Ríkið á að selja sinn hlut EFTIR að búið er að lækka eiginfjárhlutfallið... annars er verið að hlunnfara ríkið um gríðarlega mikla fjármuni. Þetta er mál sem ég tel að hægt er að benda á sem arfaslaka stjórnun á fjármálum ríkisins.\"

Svo mörg eru þau orð. Og athyglisverð.