Biðtími hefur lengst um 70 prósent

Í nýrri samantekt Landlæknisembættisins um hjúkrunarrými kemur fram að biðlistar hafa lengst verulega eða um allt að 70 prósent frá árinu 2014.

Samantektin er á stöðu á biðlistum eftir varanlegri búsetu í hjúkrunarrými og yfirlit yfir biðtíma þeirra sem fluttust á hjúkrunarheimili í fyrra.

 Þann 1. janúar 2014 voru 226 einstaklingar á biðlista eftir varanlegri búsetu í hjúkrunarrými. Það jafngildir 6,1 á hverja 1.000 íbúa 67 ára og eldri. Í ársbyrjun 2018 voru 362 á biðlista, eða 8,6 á hverja 1.000 íbúa 67 ára og eldri. Ef fjöldi á biðlista er reiknaður á fjölda íbúa 80 ára og eldri biðu um helmingi fleiri í ársbyrjun 2018 en 2014.

 Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2014 höfðu þeir 226 einstaklingar sem fengu hjúkrunarrými beðið að meðaltali 74 daga eftir úthlutun. Helmingur fékk hjúkrunarrými innan 40 daga eftir að hafa fengið vistunarmat. Þeir 255 einstaklingar sem fengu hjúkrunarrými á fyrsta ársfjórðungi 2018 biðu að meðaltali 126 daga. Helmingur fékk hjúkrunarrými innan 90 daga.

Í samantektinni segir:

„Það er áhyggjuefni að biðlistar hafa lengst mikið á undanförnum árum. Biðtími þeirra sem hafa fengið varanlegt hjúkrunarrými það sem af er þessu ári var um 70 prósent lengri að meðaltali en biðtími þeirra sem fengu hjúkrunarrými á fyrsta ársfjórðungi ársins 2014. Embætti landlæknis lýsir yfir áhyggjum af stöðunni og þeim áhrifum sem löng bið eftir hjúkrunarrými getur haft á þá sem bíða eftir rými svo og annars staðar í heilbrigðiskerfinu.“

Nánar má sjá samantektina hér.