Biðst afsökunar á ummælum sínum

Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur í Garðabæ, segist sjá eftir ummælum sem hún lét falla í gær í umræðu um miðla, trú og Frosta Logason útvarpsmann á Harmageddon.

Þetta kemur fram í ummælum sem Jóna Hrönn skrifar í umræðu á facebook í dag. Haldið hefur verið fram að a.m.k. tveir prestar þjóðkirkjunnar hafi vegið að atvinnuhagsmunum Frosta Logasonar og annarra starfsmanna hjá 365 eins og lesa má um hér. Sumpart er umræðan á misskilningi byggð að mati Jónu Hrannar en sumpart segir hún að hún hefði átt að vanda betur til ummæla sinna. Hún óski þess alls ekki að Frosti og félagi hans í Harmageddon, Máni Pétursson, missi vinnu sína.

„Orð vega þungt. Í gær ræddi Guðrún Karls Helgudóttir á fésbókarsíðu sinni framkomu Frosta Logasonar gagnvart Önnu miðli í þættinum Ísland í dag. Ég brást við með einum ummælum á síðunni hennar og hvatti fólk til að hætta versla við stöð 2 meðan þeir Frosti og Þorkell Máni stýrðu umræðunni þar. Ég geri það iðulega að sleppa því að versla við fyrirtæki ef það er eitthvað sem mér líkar ekki varðandi framleiðsluna og snýr mér eitthvað annað. Auðvitað eru öll fyrirtæki á markaði og við neytendur höfum oftast val. Ástæða þess að mér hefur oft ekki líkað orðræðan og framganga þeirra félaga er að þeir ganga hart að fólki að mínu mati og oft finnst mér fólk vera niðurlægt í samskiptunum við þá,“ skrifar Jóna Hrönn.

„Í þessu tilfelli var ég ekki að verja starf miðla, það myndi ég aldrei gera. Ég er að tala um mikilvægi þess innan fjölmiðla að ef fólki er boðið að koma og útskýra sjónarmið sín þá hafi það rými til þess en mæti ekki árásaher. Það er hægt að spyrja gagnrýnna spurninga og krefjandi án þess að meiða fólk eða niðurlægja. En orð vega þungt og ég finn að menn hafa brugðist mjög reiðir við þessari setningu sem fannst á kommentakerfinu frá mér og ég tek mark á þeirri reiði og geri ekki lítið úr henni. Ég óska þess ekki að Frosta og Þorkeli Mána farnist illa, í raun bið ég þeim allra blessunar,“ heldur presturinn áfram.

„Ég er þeirrar skoðunar að ef eitthvað er í boði á markaði sem ég kann ekki að meta þá auðvitað sniðgengur maður það og verslar annars staðar. En ég hefði getað vandað mig meira af því að orð vega þungt og útskýrt mál mitt betur og verið nærgætnari. Af því að öll verðskuldum við virðingu. Að þeim orðum sögðum biðst ég afsökunar á því að hafa ekki fylgt orðum mínum betur eftir og það er ekki ósk mín að þeir Frosti og Þorkell Máni verði atvinnulausir, en mér finnst að þeir megi vanda sig meira í samskiptum við þau sem koma til þeirra í viðtöl. Svo mörg voru þau orð,“ skrifar Jóna Hrönn Bolladóttir prestur.