Biðlar til írsku þjóðarinnar um hjálp

Hanna Björk Þrastardóttir, móðir Jóns Þrastar Jónssonar, biðlar til írsku þjóðarinnar um hjálp við leitina að syni sínum í viðtali hjá Virgin Media. Jón Þröstur sást síðast fyrir um mánuði síðan í Whitehall úthverfi Dyflinnar og hefur ekkert spurst til hans síðan. Hanna Björk biður fólk sem getur gefið fjölskyldunni vísbendingar að vera ekki hrætt. Fréttablaðið greinir frá.

„Ekki hræðast það að stíga fram. Þið sem getið gefið okkur vísbendingar, hafið talað við hann eða hitt hann, eða vitið hvað er hann er niður kominn, ekki vera hrædd. Það er aldrei of seint. Írar eru indælt fólk. Ég bið ykkur, sem móðir,“ segir Hanna Björk í viðtalinu.

Hanna Björk segir að hvarf sonar síns sé það erfiðasta sem hún hafi tekist á við í lífi sínu. „Mér dettur ekkert verra í hug en að vita ekki hvar barnið mitt er.“ Hún segist hafa fengið taugáfall þegar hún heyrði að hann væri týndur. „Það gat ekki verið satt. Þetta var svo ólíkt honum, þetta bara gat ekki verið,“

Hún útilokar ekki að eitthvað slæmt hafi komið fyrir. „Þegar maður hefur enga hugmynd kemur allt til greina. Þannig tökumst við á við þetta. Við verðum að finna hann, það er í forgangi.“ Líkt og aðrir fjölskyldumeðlimir hafa sagt á síðustu dögum segist Hanna Björk ekki ætla að yfirgefa Írland án sonar síns.

Viðtalið í heild sinni er að finna á Facebook síðu Virgin Media.