\"Vændi er starfsgrein sem ég óska engum að leiðast út í,“ skrifar íslensk kona sem var í vændi í bréfi þar sem hún biðlar til Íslandsdeildar Amnesty International um að styðja ekki afglæpavæðingu vændis.
Vefmiðillinn stundin.is birtir bréf konunnar í dag, en þar segir hún meðal annars: \"Mig hryllir við þeirri tilhugsun að vændi verði gefið frjálst og kúnninn komist aftur í ríkari valdastöðu eins og áður.“
Alþjóðahreyfing Amnesty fundar í Dyflinni nú um helgina. Á fundinum liggur fyrir tillaga um að Amnesty líti svo á að vændi eigi að gefa frjálst, að kaup, sala, milliganga um vændi og rekstur vændishúsa verði látið óátalið. Í tillögu Amnesty er áhersla lögð á að mannréttindi fólks sem starfar í kynlífsþjónustu séu varin, að barátta gegn mansali og kynbundnu ofbeldi verði efld. Er því haldið fram að vísbendingar séu um það að glæpavæðing vændis sé líklegri til að skaða þann sem starfar í kynlífsþjónustu. Viðkomandi sé í meiri hættu á að verða fyrir áreiti og ofbeldi auk þess sem réttindi þeirra á borð við trygginga- og lífeyrismál eru óviðunandi.
Árlega leita á milli 35-50 einstaklingar til Stígamóta vegna afleiðinga klámiðnaðarins, samkvæmt yfirlýsingu kvennasamtaka sem sent var út fyrr í vikunni. Þar kemur fram að afleiðingar þeirra sem hafa verið í vændi séu sambærilegar afleiðingum kynferðisofbeldis: „Skömm, kvíði, þunglyndi, léleg sjálfsmynd og sjálfsvígshugsanir, en á ýmsan hátt ýktari.“
Kvennasamtökin sendu því út ákall til Íslandsdeildarinnar um að beita sér af alefli gegn tillögu alþjóðahreyfingarinnar. Að baki ákallinu stóðu Stígamót, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöf, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Kvennfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélagið og Femínistafélag Íslands.
Konan sem biðlar nú til Amnesty International var í vændi á þeim tíma sem það var ólöglegt að selja vændi en ekki að kaupa það og segir hún kúnnarnir hafi nýtt sér valdastöðuna til að svína á henni: \"Þá helst í formi ógnanna og einhverskonar ofbeldis. Nýttu sér valdastöðu sína til að svína á mér. Blessunarlega slapp ég við líkamlegt ofbeldi en ég þarf ekkert að tíunda það kynferðislega ofbeldi sem átti sér stað með þessari iðju minni.“
Hún segist geta tekið undir þá skilgreiningu að vændi sé nútímaþrælahald: \"Þegar manneskja stundar vændi er hún að leyfa fólki að kaupa sér aðgang að sjálfri sér til eigin afnota. Eins er manneskja sem stundar vændi og hefur stundað vændi, því þetta eltir fólk, þræll fortíðarinnar; þræll tilfinninga sem verða aldrei afmáðar.“
Nánar er hægt að lesa efni brégfsins á stundin.is