Bið eftir hjúkrun lengst um helming

Biðlistar eftir hjúkrunarrýmum hafa lengst um helming á síðustu fimm árum. Árið 2010 biðu að jafnaði 155 einstaklingar eftir þjónustuúrræði af þessu tagi, en í ár telur listinn á fjórða hundrað manns.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá embætti landlæknis sem heldur utan um skrár um dvöl fólks á dvalar- og hjúkrunarrýmum. Þar segir að lenging biðlistans á þessum tíma þýði að nú bíði átta af hverjum 1000 Íslendingum, 67 ára og eldri, eftir hjúkrunarrými í stað fjögurra af hverjum 1000 fyrir hálfum áratug.

Landlæknir segir að um 65% þeirra sem bíða eftir hjúkrunarrými séu 80 ára og eldri og þar sé áðurnefnt hlutfall mun hærra en ef horft er til allra eldri borgara landsins, eða sem nemur nær 17 manns af hverjum 1000 Íslendingum 80 ára og eldri. Af þessum hópi bíði 139 kona eftir hjúkrunarrými en 61 karl.