Bibba frumsýnd kl. 20.30

Mikil eftirvænting ríkir eftir frumsýningu fyrsta þáttar Bibbu á Brávallagötunni, en hann verður á dagskrá Hringbrautar kl.20.30 á mánudagskvöld. Þátturinn verður endursýndur kl.22.30 og á tveggja klukkustunda fresti frá hádegi á þriðjudag og um næstu helgi.

Bibba, sem er reyndar nýkomin úr augnsteinaaðgerð, á sér greinilega marga aðdáendur enda hefur myndskeiði með Bibbu verið deilt í hundraða tali á Fésbókinni síðastliðna daga, þar sem fólk hefur látið eftirvæntingu sína í ljós eftir að tugir þúsunda hafa horft á myndskeiðið.

Það er auðvitað Edda Björgvinsdóttir, leikkona, sem fer með hlutverk Bibbu, sem margir segja íslenska goðsögn úr leikhúsi- og fjölmiðlum. Bibba verður með þáttinn sinn Bibba á Hringvöðvanum (Braut) á mánudagskvöldum kl.20.30. Fylgist með frá byrjun!