Bhm vill námsstyrki vegna fleiri háskólagreina

Bandalag háskólamanna (BHM) telur að námsstyrkir þyrftu einnig að ná til nemenda í öðrum háskólagreinum. BHM fagnar hugmyndum Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, um að LÍN styrki kennaranema en bendir á nauðsyn nýliðunar í öðrum stéttum háskólamenntaðra, t.d. ljósmæðra og lífeindafræðinga. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá BHM.

Hugmyndir Lilju kveða á um að sérstakir styrkir til kennaranema væru til þess fallnir að stuðla að aukinni aðsókn í námið og koma í veg fyrir kennaraskort á landinu. BHM bendir á að það þurfi að fara svipaða leið til að tryggja nýliðun í stéttum ljósmæðra og lífeindafræðinga, þar sem ítrekað hafi komið fram að meðalaldur þeirra væri hár og að margir þeirra muni því fara á eftirlaun á næstu árum. Fjöldi nemenda sem nú stundi nám í þessum greinum muni ekki nægja til að fylla í þau skörð sem muni skapast.

Í yfirlýsingunni hvetur því BHM stjórnvöld til að grípa til róttækra aðgerða, „svo tryggja megi nauðsynlega nýliðun í þessum starfsstéttum og, eftir atvikum, í öðrum stéttum háskólamenntaðra sérfræðinga. Meðal annars ættu stjórnvöld að kanna möguleika á því að LÍN veiti nemendum í vissum greinum sérstaka námsstyrki.“