Slíkur atakafundur var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær að hlé varð að gera á honum vegna háreystis og ofsafengins rifrildis á milli bæjarfulltrúa meirihlutans og minnihlutans. Átökin snerust um veru núverandi liðsmanna Bjartrar framtíðar í nefndum og ráðum á vegum bæjarins.
Svo sem kunnugt er hafa bæjarfulltrúarnir Guðlaug Kristjánsdóttir og Einar Birkir Einarsson sagt sig úr Bjartri framtíð og lögðu þau til á fundinum í gær að víkja þeim Borghildi Sturludóttur og Pétri Óskarssyni, sem enn eru í BF, úr nefndum á vegum bæjarins. Ákvörðun þessa efnis hefur legið í loftinu um nokkurn tíma, enda hefur Borgildur, sem situr í skipulags- ogg byggingarráði verið óspör á gagnrýni sína á ákvarðanir meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar á yfirstandandi kjörtímabili.
Tillögu Guðlaugar og Einars Birkis um að reka Borghildi og Pétur af póstum sínum var mótmælt svo harðlega á fundinum í gær, meðal annars af Gunnari Axel Axelssyni, fulltrúa Samfylkingarinnar að bæjarstjórnarsalurinn mun hafa nötrað um tíma, enda barst háreystin út á götu svo óbreyttir vegfarendur vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið undir gafli ráðhússins.
Eftir hlé á fundinum var tillagan samþykkt með atkvæðum meirihlutans.