Skúli Helgason, borgarfulltrúi og formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir vanda leikskólanna verða leystan. Hann segir unnið að lausn þeirra mála sem fjallað hefur verið um. Skúli er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld.
Eitt af því sem hann nefnir er unnið er að útfærslu á tekjutengingu leikskólagjalda, þannig að betur stæðir foreldrar borgi meira en þeir tekjulægri.
Skúli Helgason segir að búast megi við gagnrýni verði tekjutengingin ofan á, en eigi að síður er sú útfærsla í útreikningum.
Viðtalið við Skúla er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.