Kjörsókn nam 81,2% og greiddu 201.777 kjósendur atkvæði. Á kjörskrá voru 248.515 manns. Í kosningunum 2016 var kjörsókn 79,2%. Tölur sýna að frá árinu 1944 hefur kjörsókn farið minnkandi.
Áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla á kosningarnar eru verðugt rannsóknarefni. Líkast til eru mestu árhrif þeirra fólgin í að styrkja ákveðna kjósendur í ákvörðunum. Þá eru líkur á að áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla á skoðanir almennings séu óbein og fari þá helst þá leið að fólk leggur eyru við það sem skoðanaleiðtogar segja.
Einkum skoðanaleiðtogar sem kjósendur líta upp til - til dæmis álitsgjafa og menningarvita. Þessir eru þá eins konar skoðanaskilvindur á milli kjósenda og þessara miðla. Líkast til eru þessi áhrif ofmetin og í besta falli óbein. Svo er eftir að skoða áhrif falsfrétta og grófs áróðurs í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum.