Betra hljóð í samningafólki

Vinnufundir deilenda á vinnumarkaði á síðustu dögum hafa að sögn Þorsteins Víglundsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins verið gagnlegir og segir hann aukinn kraft vera kominn í viðræðurnar.


Þetta á raunar líka við um kjaradeilu opinberra starfsmanna við samninganefnd ríkisins en þar gætir nú loks meiri jákvæðni í samtali deilenda en verið hefur um margra vikna skeið. Það líka kannski eins gott því verkfall félagsmanna Bandalags háskólamanna er farið að hafa svo alvarleg áhrif úti í samfélaginu, ekki síst hjá matvælaframleiðendum að þau eru að verða óafturkræf með öllu. Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM segir að viðræðurnar þokist nú í rétta átt.


Flóabandalagið og VR eiga fund með viðsemjendum sínum í húsnæði Ríkissáttasemjara í dag og það á einnig við um BHM og samninganefnd ríkisins.