Atvinnurekandinn Margrét Kristmannsdóttir veltir því fyrir sér í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is hvort listi Creditinfo um fyrirmyndarfyrirtæki á Íslandi yrði ekki miklu, miklu lengri ef fleiri þeirra gætu gert upp í öðrum gjaldmiðli en krónunni.
Hún bendir á að aðeins 1,9% íslenskra fyrirtækja standist þau skilyrði sem Creditinfo setur fyrir því að kallast fyrirmyndarfyrirtæki, en hitt sé ekki síður áhugavert að skoða listann yfir þau fyrirmyndarfyrirtæki sem hafa átt kost á að yfirgefa krónuna og gera nú flest upp í evru eða dollar. Þau séu 30 að tölu: \"Það væri áhugavert að vita hversu mörg hinna 652 fyrirtækja á listanum myndu feta í fótspor þessara stórfyrirtækja og yfirgefa krónuna ef þeim stæði það til boða,\" skrifar Margrét og bendir á muninn: \"Að fjármagna rekstur með 1-2% vöxtum í stað 8-9% hlýtur að gjörbreyta allri ákvarðanatöku og afkomu.\"
Ságrætilegast sé til þess að vita að fjöldi þeirra fyrirtækja sem kæmist á fyrirmyndarlistann yrði miklu, miklu meiri ef íslenskur fjármagnskostnaður væri ekki að sliga rekstur þeirra, skrifar Margrét ennfremur og birtir lista yfir heppnu fyrirtækin á Íslandi:
Samherji | EUR | Hampiðjan | EUR | |
Norðurál | USD | Vinnslustöðin | EUR | |
Icelandair Group | USD | Medis | EUR | |
Össur | USD | Þorbjörn, Grindavík | EUR | |
Síldarvinnslan | USD | Actavis | EUR | |
Icelandair | USD | Ice Fresh Seafood | EUR | |
HB Grandi | EUR | NOX Medical | EUR | |
Ísfélag Vestmannaeyja | USD | LS Retail | EUR | |
Eimskip | EUR | Icelandic Travel | EUR | |
Loftleiðir-Icelandid | USD | Iceland Seafood | EUR | |
Marel | EUR | Flugfélagið Atlanta | USD | |
Bláa Lónið | EUR | Go Pro | EUR | |
ELKEM | NOK | Terra Nova Sól | EUR | |
Rammi | EUR | Huginn | USD | |
Útgerðarfélag Akureyrar | EUR | Akraborg | EUR | |
\"Já – það hefur löngum verið munur á Jóni og Séra Jóni,\" skrifar Margrét um tvöfalda kerfið á Íslandi.