Besti maturinn: úrslitastundin

Það er komið að úrslitastundu í matreiðslukeppni Völu Matt á Hringbraut, en þættir hennar, Besti maturinn hafa vakið athygli áhorfenda fyrir nýstárleg efnistök og skemmtilega nálgun.

Síðustu vikur hefur Vala fengið til sín marga þjóðkunna gesti til að útbúa aðalrétt og eftirrétt fyrir samtals 3000 krónur, en skilyrðið hefur verið að þeir séu hollir og einfaldir í matreiðslu, fyrir nú utan að kosta sem minnst.

Félagarnir Albert Eiríksson og Gunnar Helgason hafa verið Völu til halds og trausts í þáttunum og mynda dómarateymið með henni sem sker úr um besta aðal- og eftirréttinn í kvöld.

Og þá er bara spurningin; er besti maturinn eldaður af Tobbu Marinós og Kalla Baggalút, Díönnu Ómel og Siggu Kling, Lollu eða Möggu Jónasar, Hannesi og Guðrúnu Gunnars eða einhverjum allt öðrum gestum þáttanna frá síðustu vikum.

Besti maturinn byrjar klukkan 20:00 í kvöld og er endursýndur strax klukkan 22:00, en upptökustjóri þáttanna er Jón Karl Helgason.