Besti maturinn hefur göngu sína

Upplýsandi, fræðandi og lifandi matreiðsluþættir í umsjá Valgerðar Matthíasdóttur sem bera nafnið Besti maturinn hefjast á Hringbraut í kvöld klukkan 20:00, en óhætt er að segja að þar fari einhverjir skemmtilegustu þættir sem Hringbraut hefur sett á skjáinn.

Í þáttunum fær Vala Matt til sín góða gesti sem keppa um það hver geri besta, einfaldasta, fljótlegast og hollasta aðalréttinn og eftirréttinn fyrir samtals þrjú þúsund krónur, fyrir fjórar persónur.

Áskorunin er mikil í þessum efnum, enda sjaldnast auðvelt að elda gott og hollt fyrir lítinn pening. Þetta er þó markmið Völu með þáttunum - og dómarar með henni gefa hér engin grið, en þar eru komnir þeir Albert Eiríksson og Gunnar Helgason, klárlega ekki leiðinlegustu menn Íslands.

Þættirnir eru teknir upp af Jóni Karli Helgasyni, kvikmyndagerðarmanni í eldhúsi verslunarinnar Parka á Dalvegi - og ekkert gefið eftir í útiliti og inntaki þáttanna sem verða skrautfjöður Hringbrautar á næstu vikum, en fyrsta þáttaröðin telur átta þætti. 

Meðal gesta í þáttunum á næstu vikum eru pörin Ellý Ármanns og Freyr Einarsson, Tobba Marinós og Kalli Baggalútur, Guðrún Gunnars og Hannes Friðbjarnarson, auk skvísanna Ólafíu Hrannar og Margrétar Jónasar svo nokkur dæmi séu nefnd.

\"Þetta hefur verið afskaplega skemmtilegt verkefni og á stundum erfitt að taka upp þættina sakir alls þess hláturs sem fyllt hefur salinn,\" segir Vala Matt, vongóð um að landsmenn taki þessari nýbreytni í þáttagerð opnum örmum.

Keppnin: Besti maturinn er frumsýnd alla miðvikudaga á Hringbraut klukkan 20:00 og endursýnd strax klukkan 22:00 og einnig sýnd laugardags- og sunnudagskvöldum.