Von á norðan skoti - ekki páskahreti!

\"Það er ofmælt að tala um páskahret en það kemur þarna smá norðanskot um páskana sjálfa og gæti haft áhrif á færð sums staðar. Við erum að tala um einhverja snjókomu með norðanáttinni um páskana sjálfa og svo verður rysjutíð um land allt á föstudaginn langa,\" segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á spádeild Veðurstofunnar.

Hringbraut hafði samband við Þorstein og spurði hvar páskaveðrið yrði best á landinu. Hann var fljótur til svara: \"Sunnanlands.\"

Spáð er norðan- og norðaustanáttum um páskahelgina, laugardag, sunnudag og mánudag. Þá verða íbúar sunnanlands í bestu vari en Þorsteinn segir að srax muni kólna á skírdag og og heldur leiðinlegt veður verði um land allt á föstudaginn langa. Bjart verði sunnanlands á laugardag en éljagangur fyrir norðan, svipaða sögu megi segja um páskadag og annan í páskum, kalt á öllu landinu.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur sagt að páskahret sé fram undan. Er það í kortunum samkvæmt nýjustu spám? \"Ég veit ekki hvort megi kalla þetta páskahret, kannski frekar smá norðanskot. En það gætu orðið áhrif á færð, einkum á föstudaginn langa,\" svarar Þorsteinn veðurfræðingur.

Enn verða landsmenn því að bíða vorkomu, enda aðeins 22. mars.