Besta helgarveðrið suðvestanlands

Íbúar um vestan- og sunnavert landið geta ekki kvartað yfir sumarveðrinu þessa dagana en nú ber nýrra við um austanvert landið þar sem hitinn hefur vart eða ekki farið upp fyrir átta gráðurnar síðustu tvær vikur.

Komið hefur fram í fyrri fréttum Hringbrautar að sumarvertíðin er svo að segja ónýt fyrir austan og raunar allt norður í Mývatnssveit en þar sést varla íslenskur ferðamaður þótt útlendingar skili sér með svipuðum hætti og verið hefur um árabil, einkum á hringleiðinni um Mývatn, Dettifoss og Ásbyrgi. Innan við tíundi hluti af íslenskum ferðamönnum hefur skilað sér til svæðisins miðað við það sem best hefur þekkst til þessa, svo sem í Atlavík á Héraði.

Áfram verður besta sumarveðrið milli Hvítanna á suðvestanverðu landinu, milt í veðri og allt að 17 stiga hiti um helgina, en þó fremur skýjað og hætt við síðdegisskúrum á svæðinu, en hitatölurnar eystra og norðeystra verða áfram lágar með tilheyrandi úlpuveðri fyrir unga sem aldna.