Besta helgarveðrið á vesturlandi

Einna helst mæa búast við þurrviðri um vestanvert landið um helgina og þar verður jafnframt einna hlýjast eða sem nemur allt að 17 gráðum á laugardag og sunnudag.

Austfirðingar súpa einna helst seyðið að norðaustanbrælunni sem leggur yfir landið en hætt er við næturfrosti inn til hálendisins á þeim slóðum og að það gráni niður í miðjar fjallshlíðar í þriggja til fjögurra stiga hita um þessa miðsumarhelgi þegar flestir landsmenn eru í sumarfríi.

Hvassast verður á Vestfjörðum og um suðaustanvert landið og talsverð súld með norðurströndinni - og skúrir sunnantil. 

Veðurstofan gerir ráð fyrir því að áfram verði svo savlt um norðaustanvert landið fram yfir miðja næstu viku í hægri norðlægri eða breytilegri átt.