Besta flugfélag bandaríkjanna flýgur til íslands

Delta flugfélagið er besta flugfélag Bandaríkjanna samkvæmt árlegri úttekt Wall Street Journal. Delta stundar Íslandsflug frá JFK flugvelli New York allt árið um kring og frá Minneapolis á sumrin. Túristi.is greinir frá.

Í úttekt WSJ er litið til stundvísi, aflýstra flugferða, fjölda kvartana, týnds farangurs og ofbókana. Af átta flugfélögum fljúga þrjú til Íslands, en fyrir utan Delta eru það United og American Airlines, sem komast aðeins í sjötta og sjöunda sæti listans.

Í áttunda og neðsta sæti er Frontier flugfélagið, sem skoraði lægst í nær öllum þáttum sem WSJ horfði til. Frontier er í eigu Indigo Partners, félagsins sem hyggst fjárfesta fyrir allt að 75 milljónir Bandaríkjadala í WOW air.