Besta bílategundin í usa er ekki þýsk

Besta bílategund Ameríku er ekki þýsk, ekki japönsk og ekki bandarísk. Það er semsagt ekki Audi, BMW, Benz eða lúxusmerki Toyota: Lexus og ekki Tesla heldur sem vermir efsta sætið á lista Consumer Reports, tímarits bandarísku neytendasamtakanna.

Það er Genesis. Fyrir þá sem aldrei hafa heyrt um bílategundina Genesis þá er þetta lúxusbíladeildin hjá Hyundai sem var sett á laggirnar 2015. Það sýnir vel hina geysiöru og metnaðarfullu tækniþróun S-Kóreu að bílategund sem var hálfpartinn hlegið að fyrir nokkrum árum skuli nú hafa skotist á toppinn.

Í athugun Consumer Reports um ánægju eigenda og áreiðanleika komu Genesis bílar best út. Þeir þykja auðveldir og með þægilegt viðmót sem venjulegt fólk skilur, sem sannarlega ekki verður ekki sagt um alla bíla nú til dags.

Það hjálpar kannski suður kóreska framleiðandanum í þessari útttekt Consumer Reports að gerðirnar innan Genesis tegundarinnar eru enn sem komið er aðeins þrjár, Genesis G70, G80 og G90. Audi var í öðru sæti í athugun CS með 10 gerðir. Niðurstaðan kemur kannski á óvart þegar þess er gætt að Hyundai hefur safnað einvalaliði til að þróa nýju tegundina. Innanborð hjá Genesis eru m.a. Luc Donckerwolke, fyrrum hönnunarstjóri hjá Bentley, Lamborghini og Audi og Albert Biermann, sem var yfirmaður M-kraftbíladeildar BMW.

Á teikniborðinu eru fjórar nýjar gerðir af Genesis, einn lúxusvang, sportbíll og tveir jeppar.