Engin þjóð stenst Íslendingum snúning þegar kemur að umhverfismálum og þess vegna hlusta erlendar þjóðir þegar Íslendingar taka til máls um aðgerðir til að minnka magn mengandi lofttegunda.
Þessu hélt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra á Alþingi í dag fram í svari við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG.
Katrín vildi vita hvort stóriðjan ætti að vera undanþegin í markmiððum Íslands og EES-landanna að minnka losun gróðarhúsalofttegunda um 40% fram til ársins 2013. Sigmundur Davíð svaraði engu um stóriðjuna en sagði að Íslendingar framleiddu meira af endurnýjanlegri grænni orku en nokkur önnur þjóð og þess þess vegna hlustuðu aðrar þjóðir á okkur.
Þá sagði forsætisráðherra að menn hefðu séð tækifæri í að gera sér upp misskilning vegna orða hans á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á dögunum. Það væru fastir liðir og nefndi hann sérstaklega talsmann Náttúruverndarsamtaka sem kysi ítrekað að snúa út úr.