Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur á heimasíðu sinni deilt brýningu frá Björgunarsveitinni Kili, Kjalarnesi. Hvatt er til þess að Íslendingar lesi til enda, og deili eins og vindurinn! Svona skal undirbúningi fyrir fárviðrið í dag háttað:
#1 hafa kerti, eldspýtur og vasaljós á vísum stað, látum ekki möguleika á rafmagnsleysi trufla fjörið eða kósýheitin!
#2 kaffi og heitt vatn klárt á brúsum, alltaf stuð að hafa pikknikk innandyra með teppi og náttföt
#3 finna fimm villur utandyra...er trampólínið, grillið, bíllinn, lausfestar jólaskreytingar og annað ekki örugglega komið í skjól?
#4 fjársjóðsleit...grafa frá niðurföllum og svölum, burt með grýlukertin!
#5 fjársjóðsleit II - finna rafhlöðuknúið útvarp til að fylgjast með fréttum. Gerum líka smá freistingapróf...minnka farsímanotkun, nota hann sem minnst til að spara rafhlöðu og álag á kerfið...nota hann þegar þörf er á
#6 draga fyrir glugga, að horfa á rúður svigna undan vindálagi er ekki afslappandi...svo eru gardínur fínir demparar ef rúða brotnar.
Einnig eru reifaðar nokkrar léttar hugmyndir að leikjum:
#1 finna mynd eða kort af útlínum Íslands, prenta út og lita..herma eftir þessari skrautlegu desemberlægð!
#2 eru ekki til óskreyttar piparkökur eða aðrar smákökur á heimilinu? Hvernig væri að skreyta þær í stíl við myndina!
#3 dansa eins og vindurinn!
#4 desemberlægðar naglalakk, jólakort, kross saumur, prjónaskapur eða andlitsmálning...notum hugmyndaflugið og njótum þess að vera innandyra.
#5 ef þið ætlið að vera á ferðinni ... og komið auga á útlendinga, pikkið í þau og kannið hvort þau viti af óveðrinu. Prófið áhrifarík orð eins og snowstorm, hurricane wind, dangerdanger, no one outside!
Að lokum skal tekið fram að töluverðar líkur eru á að veðrið verði svo slæmt víða að björgunarsveitir geti ekki aðstoðað fólk sem gæti lent í vanda.