Nýkjörinn forseti Frakklands heimsótti Berlin. Emmanuel Macron fór í sína fyrstu utanlandsferð sem nýkjörinn forseti Frakklands til Þýsklands.
Angela Merkel kanslari Þýsklands og Emmanuel Macron senda með þessu þau skilaboð að samvinna þeirra um ESB mál kunni að verða náin.
Bæði eiga þó þingkosingar fyrir höndum.
Macron er sagður jákvæður gagnvart hugmyndum um að endurskoða grunnsáttmála ESB og helstu ESB samninga. Merkel lætur í veðri vaka að hún sé á sömu skoðun og Macron um að óhætt sé að skoða ESB frá grunni.
Fréttaskýrendur segja að of snemmt sé að spá fyrir um hvað vakir fyrir þessum tveimur ríkisoddvitum í málum ESB. Þau eru þó sammála um að Brexit umræðan sýni að það er skárra að vera innan ESB en utan.
rtá