Guðný Aradóttir og samstarfskonur hennar í Göngum saman hópnum hafa safnað 50 milljónum króna á undanförnum árum og veitt íslenskum vísindamönnum sem rannsaka brjóstakrabbamein.
Frá þessu var greint í þætti Sirrýjar, Lífsins list sem frumsýndur var á Hringbraut í gærkvöld klukkan 21.30 og endursýndur á sama tíma í kvöld. Söfnunin fer fram á Mæðradaginn ár hvert með því sniði að gengið er saman á 15 stöðum í borginni og varningur seldur sem rennur óskiptur til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Fatahönnuðurinn Jör hefur í ár hannað höfuðklúta og boli sem eru til sölu í göngunni ásamt fleiri vörum.
Allir eru velkomnir í fjölskyldugönguna á Mæðradaginn. Dagskráin hefst á Háskólatorgi klukkan 10.00 þar sem íslensku vísindamennirnir kynna rannsóknir sínar. Og klukkustund síðar verður svo gengið um Hljómskálagarðinn og kringum Tjörnina. Hlutavelta og fleira verður til skemmtunar.
Gengið er á 15 stöðum á landinu á sunnudaginn.