Stígamót fagna aldarfjórðungsafmæli í dag, en samtökin hafa unnið ötullega gegn kynferðisofbeldi frá því þau voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar, einmitt á þeim tímum þegar heimilisofbeldi gegn konum og börnum lá í svo að segja algeru þagnargildi. Sú þögn hefur algerlega verið rofin, en eftir stendur baráttan við að koma kyndferðisbrotamálum í gegnum kerfið, en Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta segir tregðuna í málaflokknum einna helst vera að finna hjá þeim sem síst skyldi, réttarkerfinu. Eftir þennan aldarfjórðung að störfum hafa rösklega sjö þúsund einstaklingar, einkum konur, nýtt sér þjónustu Stígamóta - og þótt ýmislegt hafi áunnist í málaflokknum segir Guðrún að enn sé margt óunnið, svo sem baráttan gegn fordómum, en fórnarlömb heimilisofbeldis búi enn við fordóma af margvíslegu tagi og eigi fyrir vikið erfitt með að ræða hlutskipti sitt opinskátt.
Berjast enn við réttarkerfið
Fleiri fréttir
Nýjast