Bera nafn með rentu!

„Ljótu hálfvitarnir bera nafn með rentu. Þetta er ekkert annað en skoðanakúgun,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, í frétt í Stundinni um bann sem tónlistarmenn hafa sett við því að lög þeirra verði spiluð á Útvarpi Sögu.

Ljótu hálfvitarnir tóku þar fyrsta skrefið eins og Hringbraut greindi fyrst frá og vakti gríðarathygli. Fleiri hafa nú fylgt fordæminu s.s. Bubbi Morthens. Ástæða banns við að Saga spili lög þessara tónlistarmanna er meint mannhatur og fordómar hjá útvarpsstöðinni. Kornið sem fyllti mælinn var skoðanakönnun þar sem Útvarp Saga spurði: Treystir þú múslimum?

Stundin hefur eftir útvarpsstjóra Sögu að stöðin spili lög eftir löglegum leiðum. Ef tónlistarmenn vilji banna að spila lög sín gerist það í gegnum STEF og með bréfi. Annars séu hvorki Bubbi né Ljótu hálfvitarnir í spilun á stöðinni.