Bergvin Oddsson, sem verið hefur í leyfi sem formaður Blindrafélagsins vegna deilna innan félagsins, hefur afráðið að bjóða sig fram aftur, en hann segir í tilkynningu í dag að hann hafi fengið mikla hvatningu í þá veru.
Bergvin var fyrr á árinu ásakaður um að hafa nýtt sér stöðu sína innan félagsins og fengið félagsmenn til að taka þátt í fjárfestingu á vegum félags sem formaðurinn rekur, en Bergvin hefur vísað þeim ásökunum öllum á bug og sagt ekkert athugavert við þau viðskipti.
Í tilkynningunni sem hann sendir frá sér í dag segir: \"Á síðustu vikum hef ég fengið eindregna hvatningu og stuðning frá fjölmörgum félagsmönnum Blindrafélagsins á öllum aldri, bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, til þess að gefa aftur kost á mér í formannsembættið á næsta aðalfundi Blindrafélagsins sem haldin verður í upphafi næsta árs. Ég hef ákveðið að taka þeirri áskorun félagsmanna að halda áfram að vera í forystu Blindrafélagsins á næstu tveimur árum og mun því bjóða fram krafta mína til þess að leiða Blindrafélagið áfram til góðra verka.\"
Hann segir að í formannstíð sinni hafi mikið áunnist: \"Eftir að ég var kjörinn formaður félagsins þann 17. maí 2014 hafa tekjur vegna fjáraflana Blindrafélagsins aukist jafnt og þétt, stofnaðar hafa verið Vesturlandsdeild, Leiðsöguhundadeild, Suðurnesjadeild og AMD deild Blindrafélagsins. Allt til þess gert að efla grasrótarstarf Blindrafélagsins og færa félagsmenn á landsbyggðinni nær Blindrafélaginu og þeirri fjölbreyttu starfsemi og þjónustu sem fer fram í Hamrahlíð 17. Einnig hafa stór skref verið stigin í auknu aðgengi félagsmanna að ferðaþjónustu Blindrafélagsins og kastljósinu verið beint að málefnum barna og unga fólksins okkar. Blindrafélagið ýtti úr vör stóru ímyndarátaki Blindir sjá á vormánuðum til að varpa ljósi á ólíkar birtingamyndir sjónskerðinga og sömuleiðis að vekja athygli almennings á að blindir og sjónskertir einstaklingar eru virkir þátttakendur í samfélaginu og lifa innihaldsríku og ábyrgu lífi.\"