Sigmundur Ernir heldur áfram að segja merkilegar örlagasögur í þætti sínum Örlögin á Hringbraut í kvöld, en að þessu sinni sest Bergur Þorri Benjamínsson hjá honum, en hann lamaðist í alvarlegu vinnuslysi sumarið 1999.
Bergur Þorri var tvítugur að aldri þegar slysið reið yfir, en þá var hann að vinna uppi á þaki gömlu íþróttaskemmunnar niðri á eyri á Akureyri. Hann man það eitt að hafa misstigið sig, en fallið sjálft hefur hann aldrei munað, en það var fjögurra metra hátt og braut í honum tvo hryggjarliði. Það varð honum hins vegar til lífs að vera með fastan hjálm á höfði.
Allt hans líf breyttist eftir þennan sumardag fyrir sautján árum, en hann hefur hins vegar tekið hlutskipti sínu af slíku æðruleysi að eftir hefur verið tekið. Þá sögu alla rekur hann í viðtalinu af hispursleysi.
Fyrir hartnær tíu árum lenti bróðir Bergs Þorra í avarlegu bílslysi og lamaðist sömuleiðis - og það er vægast sagt áhugavert að heyra Berg Þorra lýsa þeim tilfinningum sem þá fóru um huga hans, svo og foreldranna sem allt í einu horfðu á tvo sýni sína í hjólastól.
Örlögin eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.
´æysa