Bergþór ræðir forsetaframboð

Í þættinum ,,Fólk með Sirrý\" sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld eru hinir rómuðu Sætabrauðsdrengir dómarar í kökukeppni Hringbrautar og Kötlu. Þátturinn fer fram í Pedersensvítunni í Gamla bíói og fara Sætabrauðsdrengir á kostum.

Töluvert hefur verið rætt um að Bergþór Pálsson ætti að verða næsti forseti og að þeir Albert Eiríksson og Bergþór myndu sóma sér vel á Bessastöðum. Bergþór ræðir þessi mál í þættinum og fullyrðir að það sé enginn stóll að losna á Bessastöðum á næstunni, en útilokar þó ekkert. 

Þátturinn fer fram í Pedersensvítunni og í Kringlunni þar sem gestir og gangandi taka þátt í Kökukeppninni. Einnig er farið í heimsókn til sigurvegararns í keppninni og er óhætt að lofa óvæntum úrslitum. 

Sigurvegarinn vekur aðdáun í einstöku viðtali. 

Fólk með Sirrý er á Hringbraut í kvöld kl. 20:00 og endurtekið kl. 22:00 og svo alltaf á hringbraut.is.