\"Þakka ykkur innilega fyrir það traust sem þið hafið sýnt mér til þess að gegna embætti forseta Íslands. Nú hefur sú staða komið upp að sitjandi forseti gefur kost á sér til áframhaldandi setu. Ég tel því að ekki sé skynsamlegt að velta fyrir sér framboði að sinni,\" segir söngvarinn Bergþór Pálsson á stuðningssíðu á facebook en hann mun ekki bjóða sig fram til embættis forseta Íslands.
Um 4000 manns hans höfðu \"lækað\" þá hugmynd að Bergþór færi fram.
Nefnd forsetaefni eða áður ákveðin hrynja nú af framboðsvagninum eins og flugur í stórhríð. Skýringin er ákvörðun Ólafs Ragnars í gær. Meðal þeirra sem fallið hafa fyrir borð má nefna sjúkrahúsprestinn Vilgfús Bjarna Albertsson sem er hættur við. Hann segir á facebook að búið sé að breyta stöðunni í pólitíska baráttu þar sem alið sé á ótta. Nokkur stuðningur hafði áður í skoðanakönnunum mælst við framboð Vigfúsar Bjarna.
Guðmundur Franklín Jónsson var fyrstur til að hætta við í gær eftir yfirlýsingu ÓRG. Lindu Pétursdóttir hætti við að fara fram rétt áður en tíðindin urðu ljós. Þá er talið að Guðni Th. Jóhannesson hætti við framboðshugmyndir en skv. heimildum Hringbrautar hefði hann boðið sig fram á sumardaginn fyrsta ef forsetinn hefði ekki stigið fram í gær og kúvent fyrri yfirlýsingu um að hætta.
Ný skoðanakönnun MMR sýnir yfirgnæfandi stuðning landsmanna við störf Ólafs Ragnars.