Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins er vonsvikinn með afléttingar sóttvarnaaðgerða í gær ef marka má nýjasta pistil hans í Morgunblaðinu.
„Íslendingar fengu ekki frelsi sitt aftur í gær. Þrátt fyrir að nú gangi yfir faraldur í líkingu við hefðbundinn inflúensufaraldur eins og sérfræðingar um allan heim hafa sagt. Meira að segja sóttvarnalækni er ekki lengur stætt á því að neita þeirri þróun í opinberri umræðu, þó hann reyni,“ segir Bergþór meðal annars í pistli sínum.
Að sögn Bergþórs aflétti ríkisstjórnin eins litlu og hægt var af þrátt fyrir að allar forsendur væru fyrir algerri afléttingu allra hafta og takmarkana á líf fólks og atvinnu þess. „Þau völdu að gera það ekki,“ segir Bergþór og heldur áfram.
„Þvert á móti var í raun ákveðið að framlengja höft og takmarkanir í rúmar sjö vikur. Í sjö vikur. Þegar nær enginn veikist, enn færri leggjast inn á spítalann, æ fleiri bólusetja sig í þriðja sinn og svo mætti lengi telja,“ segir Bergþór.
Hann segirað Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefði getað staðið í lappirnar fyrir hönd stærsta stjórnarflokksins og knúið það fram að atvinnulífinu væri einfaldlega leyft að selja þjónustu sína í friði frá ríkisvaldinu, en hann hafi ekki gert það.
„Heilbrigðisráðherra rak svo lestina á blaðamannafundinum og fór mæðulega yfir að farið hefði verið í öllu að tillögum sóttvarnalæknis. Það kom fáum á óvart enda löngu búið að útvista stjórn landsins til þess embættis. Adam var þó ekki lengi í paradís því sóttvarnalæknir bar stuttu síðar til baka að svo hefði verið, þar skeikaði klukkustund í opnun öldurhúsa.
Öll sinntu ráðherrarnir þó hlutverki upplýsingafulltrúa sóttvarnalæknis með prýði. Ríkisstjórnin er föst í tækniatriðum og á flótta undan sjálfri sér og stuðningsmönnum sínum, þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkurinn. Við verðum að losna úr þeim höftum sem nú er uppi því það eru aðstæður til þess. Snúa aftur til fyrra lífs. Lofa fyrirtækjum og fólki í landinu að blómstra. Þessi pest sem Ómíkron-afbrigðið er kallar einfaldlega ekki á annað,“ segir Bergþór að lokum í pistli sínum.