Bergsteinn: „Ertu til í að gera eitt fyrir mig?“

Bergsteinn Björgúlfsson, kvikmyndagerðarmaður, biðlar til landsmanna að hugsa sig um áður en þeir kaupa flugelda fyrir áramótin á Facebook-síðu sinni.

„Það að kaupa flugelda er eitt það versta sem þú getur gert fyrir jörðina þína og umhverfið. Með því ertu að kaupa mengun sem þú úðar frá þér á gamlárskvöld,“ segir Bergsteinn meðal annars í færslu sinni.

Að sögn Bersteins eru margar leiðir til að styrkja björgunarsveitirnar með öðrum hætti en að kaupa flugelda.

„Þær bjóða þér líka upp á að planta trjám fyrir þig. Er ekki betri tilhugsun að skilja eftir sig tré, sem munu vaxa næstu 100 árin og endurnýja súrefni jarðar, heldur en eð úða frá sér mengun og hávaða með nokkrum hvellum sem skilja ekkert eftir sig, annað en rusl og eyðileggingu,“ segir Bersteinn.

Bergsteinn segist skilja stemmninguna á bakvið flugeldana en segir nauðsynlegt að hætta hugsa þannig. Það sé tímaskekkja.

Hann segir hugsunarhátt landsmanna gagnvart flugeldum þurfa að breytast. Hver og einn verði að taka ákvörðun fyrir sig.

„Hugsaðu þig vel um áður en þú kaupir flugelda,“ segir Bergsteinn að lokum.