Áfengi, leikskólagjöld, ferðir í sund, gjald RÚV og bensín, allt þetta hækkar í verði um áramót. Fréttastofa stöðvar 2 tók saman helstu hækkanir. Ljóst er að hækkanir munu eðlilega bitna mest á þeim sem hafa lítið á milli handanna.
Eftirfarandi hækkar um áramót:
Bensín- og olíugjald til ríkisins hækkar um 2,5 prósent.
Bifreiðagjald um 2,5 prósent.
Nefskattur RÚV hækkar úr 17.500 í 17.900. Þess má geta að Ríkisútvarpið fær ekki allan nefskattinn.
Áfengis- og tóbaksgjald hækkar um 2,5 prósent.
Stakt gjald í sund hækkar úr 1.000 krónum í 1.030
Árskort hækkar um 850 krónur í sund.
Miði í Húsdýragarðinn hækkar úr 900 krónum í 920 krónur fyrir fullorðna. Miði fyrir börn á aldrinum 5 til 12 ára hækkar úr 680 krónum í 700 krónur.
Miði í listasafn Reykjavíkur hækkar úr 1.800 krónum í 1.840 krónur
Leikskólagjöld hækka um 2,5 prósent í borginni.
Námsgjald barns fyrir átta tíma vistun fer yfir fimmtán þúsund. Við bætist fæðisgjald.
Strætó hækkar úr 470 krónum í 480 krónur.
Nánar er fjallað um hækkanir á vef Vísis.