Bensínverð á Íslandi hefur lækkað um 20% á síðustu þremur árum og hefur bensínlítrinn á þessu ári kostað að meðaltali 221,09 krónur, eða 55 krónum minna en það var að jafnaði fyrir þremur árum.
Bensínverð var að meðaltali 276,96 krónur árið 2012 á núvirði samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).
„Eldsneyti er með stærri útgjaldaliðum heimilanna þannig að það hefur jákvæð áhrif á heimilisrekstur að lækka þennan útgjaldalið hjá heimilinu. En á móti kemur að hækkunin fram að því var óvenjubrött,“ segir Runólfur, framkvæmdastjóri FÍB, í umfjöllun um bensínverðsþróunina í Morgunblaðinu í dag, og vísar þá til þess að bensínverð hækkaði mikið eftir hrun fram til ársins 2012.