„Það er stórfurðulegt að fólk setji út á okkar mótmæli.“
Þetta segir Benjamín Julian í samtali við Fréttablaðið. Benjamín kveikti í bandaríska fánanum í fjörunni við höfða og var hann handtekinn fyrir verknaðinn.
Þá gagnrýnir Benjamín að ráðamenn hér á landi hafi tekið varaforsetanum opnum ormum.
„Þegar okkur varð ljóst að ekkert af fína fólkinu í Reykjavík gerði fyrirvara um að þessi viðurstyggilegi maður væri að koma hingað og gera sig breiðan þá fórum við niður að sjónum með bandarískan fána af ódýrustu gerð og kveiktum í honum til að útlista andstöðu okkar við þann óhroða sem hann dregur með sér hvert sem hann fer.“
Hér má lesa frétt Fréttablaðsins í heild sinni.