Benedikt í sama kjördæmi og sigmundur davíð

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hefur ákveðið að vera í framboði í Norðausturkjördæmi. Hann á rætur í það kjördæmi.

Fyrir eru áberandi þingmenn í kjördæminu; Steingrímur J. Sigfússon, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Kristján Þór Júlíusson. Kristján Möller verður ekki í framboði.

Þetta kom fram í viðtali Óðins Jónssonar í Ríkisútvarpinu við Benedikt rétt í þessu.