Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, veltir um þessar mundir fyrir sér að sækja um stöðu seðlabankastjóra.
Staðan var sem kunnugt er auglýst nýlega, og í hana verður skipað til fimm ára í ágúst næstkomandi, en Már Guðmundsson, sem nú gegnir stöðunni, lýkur þá lögbundnum hámarksskipunartíma sínum.
Lítið hefur borið á umræðu um hugsanlega arftaka Más enn sem komið er, en umsóknarfrestur um starfið rennur út þann 25. mars næstkomandi, og í kjölfarið verður listi umsækjenda birtur. Orðrómur var uppi um að Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og mennta- og menningamálaráðherra, hygðist sækja um, en því hefur hún sjálf neitað.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/benedikt-horfir-til-sedlabankans/153088/