Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar og útgefandi Frjálsrar verslunar segir að auðvitað eigi Ólafur Ragnar Grímsson að hætta sem forseti Íslands á næsta ári; hann verði að hætta að líta á sjálfan sig sem ómissandi.
Þetta sagði Benedikt í harla fjörlegum þætti Ritstjóranna á Hringbraut á þriðjudagskvöld, sem hægt er að sjá hér - og bætti því við að það væri síðari tíma útskýring forsetans að hann óttaðist fjárstuðning Sádi-Araba til að reisa mosku hér á landi. Sjálfsagt væri að reisa það hús og ekkert að því að fá stuðning til þess að utan, svo fremi að ekki fylgdu því vopn og tilskipan um að setja hér upp æfingabúðir í þeim erindagjörðum að drepa saklaust fólk. Í þessu tilviki hefði forsetinn, sem vanalega gæti ekki þagað í 6 til 8 sekúndur sagst hafa orðið kjaftstopp í 6 til 8 mánuði eftir að hafa setið fund með fjársterkum Sádum sem lýst hefðu áhuga á að styðja mosku hér á landi; enginn tryði þessari lýsingu, enda hitt augljóst að forsetinn væri með þessum síðari tíma orðum sínum að spila inn á fordóma gagnvart múslimum, hann spili vanalega inn á þá fordóma sem henti honum hverju sinni og skipti um vini og kjósendur eins og sokka, svo sem allir þekktu, sagði Benedikt í þessari harðorðu ádrepu sinni.
Jón Agnar Ólason, ritstjóri sérblaða Morgunblaðsins, sem var með Benedikt í þætti gærkvöldsins, var sama sinnis, sagði forsetann með frægum ummælum sínum í risaviðtali í DV hafa ýtt undir óöryggi og hræðslu; þar hefði birst þjóðlegur forseti með bindi í fánalitunum sem boðað hefði viðvarandi hættu af fólki annarrar trúar en flestir Íslendingar - og nú væri hann sumsé tilbúinn að passa fólkið sitt áfram. Viðbrögð Jóns Agnars við þessu hefði einfaldlega verið; ja, kosningabaráttan byrjar snemma.
Benedikt sagði að auðvitað ætti Ólafur Ragnar að hætta í embætti á næsta ári; viturlegt væri að hverfa úr embætti áður en maður væri dreginn úr starfinu. Forsetinn væri óskaplega upptekinn af því að fólk væri svo hrætt við að hann væri að hætta, en það minnti Benedikt á nýlega grein í Vísbendingu um valdhroka og valdníðslu sem fjallar um menn sem telja sig ómissandi. Þar væri vitnað í kenningar Roberts Owens, stjórnmálamanns og læknis sem hefur sagt það áunninn sjúkdóm að neita að láta af völdum. Sú sjúkdómslýsing ætti augljóslega við sitjandi forseta Íslands.
Ritstjórarnir eru alltaf á dagskrá Hringbrautar á þriðjudagskvöldum klukkan 21:30.