Bendir á brýnan útskriftar- og mönnunarvanda

Í minnisblaði landlæknis til heilbrigðisráðherra er bent á úrræði sem landlæknir hvetur heilbrigðisráðherra til að leggja sitt af mörkum við að leysa og varða hvorutveggja, útskriftar- og mönnunarvanda Landspítalans. Tillögurnar  má lesa á vef stjórnarráðsins og eru eftirfarandi:

  • Öldrunarheimilið á Seltjarnarnesi verði opnað eins fljótt og verða má.
  • Opnun sjúkrahótels verði flýtt eins og unnt er.
  • Greint verði frekar hver áhrif af þessu tvennu verði og metið í samráði við Landspítala hvort grípa þurfi til frekari úrræða eins og til dæmis að fela til þess bærum aðilum að reka hjúkrunarrými til bráðabirgða.
  • Heimahjúkrun og heimaþjónusta verði efld og áhersla lögð á samhæfingu öldrunarþjónustu. Bent var á í nýlegri skýrslu KPMG um mat á InterRAI mælitækjum að hérlendis fer mun lægra hlutfall af vergri landsframleiðslu til heimahjúkrunar en á hinum norðurlöndunum (bls. 12). 3
  • Til lengri tíma þarf að ráðast í nákvæma greiningu á þörf fyrir hjúkrunarrými, heimahjúkrun og heimaþjónustu. Ennfremur ætti að auka áherslu á heilsueflingu eldri borgara.
  • Efla þarf mönnun, sérstaklega hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, til skemmri og lengri tíma. Landlækni er kunnugt um að heilbrigðisráðherra hefur þegar lagt fram tillögur til að bregðast við þeim vanda sem að mati landlæknis þolir enga bið.