Bandaríski leikarinn Ben Stiller er aðdáandi sjónvarpsþáttanna Ófærð ef marka má færslu hans á Twitter í gærkvöldi. Önnur sería af Ófærð hófst á RÚV í gær og Stiller lýsti yfir aðdáun sinni á þáttunum og Ólafi Darra með tísti.
Elska þessa þætti og Ólaf Darra,“ skrifaði hann og vitnaði í tíst frá The Killing Times sem óskaði Íslendingum til hamingju með Ófærð.
http://www.nutiminn.is/ben-stiller-anaegdur-med-ofaerd-elska-thessa-thaetti-og-olaf-darra/